- Að síðan kindur voru tamdar og gerðar að húsdýrum fyrir um 12.000 árum hefur heili þeirra minnkað, ullin orðið umfangsmeiri og breyst frá brúntóna litum í hvíta og svarta liti. Eyrun þeirra lafa meira og hornin eru veikari.

-Að Wilson Bandaríkjaforseti bjó með kindur á flötinni við Hvíta húsið þegar fyrri heimstyrjöldin geysaði. Ullin af þeim var selt til styrktar Rauða Krossinum.

-Að 20% af kindakjötframleiðslu íslendinga er flutt út. Helstu markaðssvæði eru Bretland, Noregur, Færeyjar, Danmörk, Japan og Bandaríkin.
(Bændablaðið)

- Að tæplega 95% forystufjár er mislitt.

-Að riðuveiki er talin hafa borist til Íslands með enskum hrút sem fluttur var hingað frá Danmörku að Veðramóti í Skagafirði árið 1878.
(Vísindavefurinn)

-Að gönguleið kinda er oftast frekar skrykkjótt því þær líta reglulega aftur fyrir sig til að gá að hættum og þá missa þær stefnuna augnablik.

-Að Íslenska kindin er með stutta rófu (dindil) sem var algengt um alla Norðvestur- Evrópu áður fyrr en finnst nú aðeins á Norðurlöndum, Rússlandi, Hjaltlandi, Færeyjum og Orkneyjum.

-Að af búfjárstofni landsins eru fórnarlömb umferðaslysa að miklum meirihluta sauðfé.

-Að til eru yfir 900 mismunandi tegundir af kindum í heiminum

-Að kindur hafa ekki framtennur í efri góm. Þetta gerir þeim kleift að bíta mjög nálægt grassverðinum án þess að eyðileggja jarðveginn.

- Að forystufé er aðeins til í íslenska sauðfjárstofninum.

- Að kindur voru fyrstu húsdýrin u.þ.b. 2000 árum á undan kúm og geitum.

- Að samkvæmt tölum frá hagstofunni eru kindur á Íslandi tæplega 180.000 fleiri en menn.
(Vísindavefurinn)