Október 2009

Loks er runnin upp stundin sem óþreyjufullir aðdáendur Sauðamessu hafa beðið eftir. Hefur nú Sauðkindasöngur Bjartmars Hannessonar verið endurútgefinn í flutningi og útsetningu hljómsveitarinnar Festivals, þeirrar hinnar sömu og mun fara hamförum á réttarballi næstkomandi Sauðamessu.

 

Á haustdögum 2005 fóru í hönd mikil tímamótum í íslenskri tónlistarsögu. Í fyrsta sinn í sögunni var aðgengilegt heildstætt lag um íslensku sauðkindina þar sem ferlinu er fylgt alla leið frá litlu lambi upp í gómsæta kjötsúpu. Þetta lag var sett saman í tilefni af Sauðamessu 2005.
Höfundur er Bjartmar Hannesson, sá hinn sami og samdi hinn þjóðsönginn: “Hæ hó jibbí jei osfrv.”