Að bera fé: Afklæða kind

Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap

Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur

Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur

Eiginfjárstaða: Að standa fyrir þegar verið er að reka "eigið fé,,

Fégirnd: Afbrigðileg kynhneigð (Að girnast sauðfé)

Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket

Féhirðir: Smali

Félag: Lag sem samið er um sauðfé

Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé

Félegur: Eins og sauður

Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki

Fjárdráttur: Samræði við kind

Fjárfesting: Baggaband, oft fléttað, notað til þess að tjóðra kindur

Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé

Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé

Fjárlög: Lög sem samin eru um sauðfé - Tóndæmi (Þér hrútar - Bjarni Guðmundsson)

Fjármagn: Þegar margar ær koma saman

Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm -Tóndæmi

Fjármálaeftirlit: Sauðfjárræktarráðunautar

Fjármálakreppa: Skortur á sauðfé

Fjármálaráðherra: Yfirsmali

Fjármálastofnanir: Landbúnaðarráðuneyti og aðrar stofnanir sem hafa að gera með málefni sauðfjár

Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda

Fjárnám: Skóli fyrir kindur

Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beitt fyrir plóg

Fjársöfnun: Smalamennska

Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin

Fjárvarsla: Það að geyma kindur

Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum

Fjáröflun: Smalamennska

Fundið fé: Kindur sem búið er að smala

Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli

Grímsá: Kind í eigu Gríms

Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér

Hlutafé: Súpukjöt

Langá: Einstaklega löng kind

Lausafé: Kindur sem eru lausar á afréttinum

Lausafjárstaða: Að standa fyrir þegar verið er að reka fé

Norðurá: Kind að norðan

Opnibert fé: Fé í eigu ríkisins

Rangá: Kind tekin í misgripum

Sauðburður: Þegar handbært fé er borið að á milli staða

Sparifé: Kindur sem ekki eru notaðar hversdags

Stofnfé: Fyrstu kindurnar sem maður eignast

Tryggingafé: Öruggt sauðfé

Veltufé: Afvelta kindur

Þjórfé: Drykkfelldar ær

Þverá: Þrjósk kind

Orðabókinni hefur borist viðauki frá Bjarna Guðmunds. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir og birtum viðaukann hér með:

Fébætur: ullarlagðar á víð og dreif í haga

Féfletta: rýja - taka af

Féfletting: aftekt - rúningur

Fjárhús: banki

Fjárhúskró: skrifstofa í banka

Fjárglæfrar: gapalegur rekstur á fé í fjöllum

Fjárhaldsmaður: maður sem heldur í kind, m.ö.o. í-halds-maður

Fjárstreymi (jákvætt): fjárhópur sem rekst undan manni

Fjárstreymi (neikvætt): rollur sem æða á móti manni

Lánsfé: tví- og þrílembdar ær sem koma sjálfar heim daginn fyri slátrun

Vegafé: stakar kindur í vegkantinum....

Í september 2008 sendi Bjarni Guðmunds. dyggur lesandi saudavefsins okkur fleiri orð í orðabókina:

eiginfjárhlutfall:  hlutur heimafjár þegar túnrollur nágrannanna hafa verið taldar og tíndar úr ...

Fépynd: sauðfé, rekið gassalega með hundum og hávaða (=fjárkúgun)

Fésýsla: Strandasýsla (=fjársýsla
)

Eigið fé (neikvætt): Kindur, líklega teknar (ófrjálsri hendi?) frá nágrannabæ ....  

Magndís Grímsdóttir sendi okkur eftirfarandi og þökkum við kærlega fyrir það:

Að giftast til fjár: Að giftast bónda

Gunnar Sæmundsson í Hrútatungu bætti við fjármáli sem hefur verið í notkun þar á bæ um nokkurt skeið, bestu þakkir:

Uppbótarfé: Seinni tvílembingurinn.

Auka fjármagn: Þrílembingurinn

Þenslufé: Fjórlembingar

Óæskilegt viðbótafjármagn: Aðkomukindur

 

Sigurður Örn Hannesson hobbýsauðabóndi á Hornafirði sendi okkur eftirfarandi, vér þökkum það:

Fjárþröng: Rétt (þar sem þrengt er að fé)

 

Stefanía Sveinbjarnardóttir á Yeoman sauðfjárbúinu í Ameríku sendi okkur eitt hugtak og þökkum við fyrir það. Það má í framhjáhlaupi geta þess að Yeoman farm var fyrsta fjárbúið í Ameríku sem hóf ræktun á íslensku sauðfé en það var árið 1985:

Ferhyrnt fé: snyrtilegur seðlabunki