8. október 2005
Bændur og búalið - Gleðilega hátíð

8. október 2005
Rás tvö á Sauðamessu

Þeir sem eru löglega afsakaðir og komast ekki á Sauðamessu af einhverjum ástæðum geta fengið nokkur hljóðdæmi í útvarpi allra landsmanna því Rás 2 verður á staðnum og ætla þau Linda Blöndal og Björn Jörundur, nýr laugardagsmaður rásar 2, að spjalla við bændur og búalið ær og sauði um búskaparhætti, heyfeng og harðindi, kjötsúpu og keppasaum og dásemdir íslensku sauðkindarinnar svo fátt eitt sé nefnt.
Verið rétt stillt eftir kl. 13.00.

7. október 2005
Rúin inn að skinni

Ástralinn Dwayne Black er núverandi heimsmethafi í sauðarúningi samkvæmt heimsmetabók Guinnes. Metið setti hann þann 17. apríl 2005 er hann rúði ástralska kind á hvorki meira né minna en 45,41 sekúndu í myndveri Guinnes sjónvarpsþáttarins í Sidney.

7. október 2005
Í kaupstað

Jón bóndi á Kópareykjum brá sér af bæ í dag, alla leið til Reykjavíkurhrepps. Ferðinni var heitið í Kastljósið, þar sem hann leiddi landsmenn í allan sannleika um Sauðamessuna. Þeir sem voru í fjósi þegar þátturinn var sýndur geta smellt hér og horft á hann.

7. október 2005
Þættinum hefur borist bréf
Borist hefur viðauki í Sauðaorðabókina, sem er nú birtur á síðum sauðavefsins.

5. október 2005
Ævintýraleg ull

Álfar Tolkiens í sögu Hringadróttins báru síðar skikkjur með hettu. Þessar skikkjur voru úr sérstöku efni sem sýndi mismunandi liti eftir því hvernig birtan féll á það, allt frá laufgrænum blæ út í dimman silfurgráan. Þær voru sérlega léttar og silkimjúkar, hlýjar í kulda en svalar í hita. Búningahönnuðirnir sem hönnuðu búningana fyrir kvikmyndirnar um Fróða og stórfætta félaga hans duttu aldeilis í lukkupottinn þegar á fjörur þeirra rak ull af Stansborough Gotland kindum frá Wellington á Nýja- Sjálandi. Ullin er gædd nákvæmlega þessum eiginleikum og er hjörðin á Stansborough búgarðinum sú eina sinnar tegundar í heiminum. Hún á ættir sínar að rekja til lítillar eyju út frá strönd Svíþjóðar. Búningahönnuðirnir pöntuðu í snarhasti yfir 1000 metra af ullinni sem var notuð til þess að gera skikkjur á álfana, jakka fyrir Hobbita, klæði hermanna og síðast en ekki síst mussu dvergsins snubbótta, Gimla.

4. október 2005
Ullarkápur snúast upp í andhverfu sína

Kindurnar á Zenith Heights búgarðinum eru sannkölluð dekurdýr. Á haustin klæðast þær kápum þangað til þær eru settar á hús til þess að halda ullinni hreinni. Nancy Wiese, eigandi þeirra, er ræktar ekki sitt fé sjálf heldur kaupir það af öðrum bændum og velur þá lömbin með tilliti til mýktar og litbrigða ullarinnar. Hún segist dekra við kindurnar sínar og telur að það skili sér í gæðum ullarinnar. Á Zenith Heigts eru 20 kindur og þjóna eingöngu því hlutverki að skaffa ull sem Nancy spinnur og prjónar úr.

3. október 2005
Sauðaorðabókin í nýrri útgáfu
Sauðaorðabókin hefur nú verið gefin út í nýrri og endurbættri útgáfu. Ritnefnd hefur setið að störfum síðan fé kom af fjalli og má leiða líkum að því að orðabókin innihaldi nú um 97% vors ærlega orðaforða. Nú eru tímamót í útgáfu sauðaorðabókarinnar því nú er hún í fyrsta sinn birt á netinu og aðeins hér á vef sauðamessunar. Orðabókina má finna undir hnappnum Sauðaorð hér til vinstri.

3. október 2005
Sjávarútvegsráðherra heiðursgestur

Nýskipaður sjávarútvegsráðherra, Einar K Guðfinnsson, verður heiðursgestur á sauðamessu 2005 þann 8. október n.k. Einhvern kann að undra það að ráðherra sjávarútvegs geti tengst þessum mikla viðburði á einhvern raunhæfan hátt. Ástæðan er hinsvegar einföld eins og allir glöggir menn sjá þar sem hvergi er meira fé að finna, í nokkurri atvinnugrein, en í sjávarútvegi.

2. október 2005
Spennan magnast

Nú eru margir farnir að telja niður enda óðum að styttast í messu. Dagskrá Sauðamessu 2005 er komin á vefinn uppfull af kindarlegum og sJARMerandi skemmtiatriðum. Hátíðin hefst með fjárrekstri frá Hyrnutorgi og inn í rétt sem er rétt við gamla mjólkursamlagið. Þar á eftir verður meðal annars réttarstemning, lambaketsmarkaður, sparðatíningur, fjárdráttur, sauðajóga, neftóbakshorn auk fjölda annara atriða bæði á og í grennd við sviðið. Dagskránni lýkur svo með réttarballi á Búðarkletti.
"Það eru mannréttindi að eiga sauðfé."

30. september 2005

Íslenska kindin í norður - Ameríku
Í norður- Ameríku eru á annað hundrað fjárbúa sem einbeita sér að ræktun íslensku kindarinnar. Bændur þar í sveit laðast einkum að íslensku kindinni vegna þess hversu þrautseig og sterkbyggð hún er. Hún þroskast fyrr og lifir lengur, eignast fleiri afkvæmi en flestar aðrar tegundir sauðkinda og þykir hafa afar smekkleg og fjölbreytt litbrigði. Samtök ræktenda íslensku sauðkindarinnar í norður - Ameríku reka vefsíðuna www.ibona.com, en á henni má finna tengla á fjölda sauðfjárbúa.

29. september 2005
Bændablaðið er komið út

Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega og það má mjög auðveldlega nálgast á netinu og lesa þess vegna aftur og aftur ef menn óska. Meðal efnis í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er umfjöllun um framleiðslu kodda og barnasvefnpoka úr ull, kynbótaátak félags sauðfjárbænda í dalasýslu og nýjar lopapeysuuppskriftir frá Ístex. Smelltu hér til þess að nálgast vefútgáfu af bændablaðinu.

27. september 2005
Tímamót

Um þessar mundir fara í hönd mikil tímamótum í íslenskri tónlistarsögu. Í fyrsta sinn í sögunni verður núna aðgengilegt heildstætt lag um íslensku sauðkindina þar sem ferlinu er fylgt alla leið frá litlu lambi upp í gómsæta kjötsúpu. Þetta lag er sett saman í tilefni af Sauðamessu.
Höfundur er Bjartmar Hannesson, sá hinn sami og samdi hinn þjóðsönginn: “Hæ hó jibbí jei osfrv.” – Flytjendur eru Sviðahausarnir en þeir eru Gunnar Ringsted sem leikur á slurk af hljóðfærum og Júlíus Guðmundsson sem syngur.

 

Dreyfibréf um Sauðamessu var borið í hús í Borgarfirði í vikunni. Smellið hér til þess að lesa dreyfibréfið.

22. september 2005

Beðið eftir Sauðamessu
Óþreyjufullum messugestum bendum við á að stytta sér stundir með því að spila smalaleikinn Sheep game hér á vefnum.

3. september 2005
Hin árlega og afar smekklega Sauðamessa verður haldin í Borgarnesi laugardaginn 8. október. Líkt og síðasta haust verður m.a. boðið upp á sauðmeinlausa skemmtidagskrá, sauðshátt af ýmsum toga, réttarstemningu, ketmarkað, fóður fyrir menn og dýr og ýmis konar afþreyingu og menningaviðburði í anda íslensku sauðkindarinnar.

Sauðamarkaður
Hverjum sem vilja falbjóða kindarlegan varning á hátíðinni er boðið upp á aðstöðu á hátíðinni gegn vægu gjaldi. Við leitum eftir þjóðlegu handverki, landbúnaðarafurðum eða hverju öðru sem sauðkindinni er þóknanlegt. Nánari upplýsingar í síma 862-4041 eða á rafrænu formi: asta@andakill.is

Þá eru vel þegnar hvers konar hugmyndir um hvaðeina sem mætti verða til að auka veg og virðingu ferfætlinga í lopapeysu.

Sauðamenn
899-4098 eða 660-8245
gisli@skessuhorn.is - bjarki@bk.is

 

 

1. september 2005

Velkomin á vef Sauðamessu. Sauðamessa 2005 verður haldin í Borgarnesi 8. október næstkomandi. Fylgist með undirbúningnum hér á vefnum.